Nafnið Idex ehf. hefur nú gengið í endurnýjun lífdaga og hefur yfirtekið fyrrum
umboð Formaco ehf.
Idex nafnið á sér yfir 20 ára sögu á íslenskum byggingamarkaði, þekkt fyrir þá gæðavöru er fyrirtækið hafði að bjóða íslenskum byggingamarkaði. Árið 2004 keypti Formaco ehf. allan rekstur Idex ehf. Reykjavík og Ides A/S Danmörku og var markmiðið að auka vöruúrval og veita viðskiptavinum enn betri og fjölbreyttari þjónustu. Var Idex ehf. rekið sem sjálfstæð eining innan félagsins. Umbrotatímar í efnahagslífi Íslands árið 2008 gerðu þó það að verkum að stöndugt fyrirtæki í mikilli uppbyggingu eins og Formaco ehf. var ekki veitt tækifæri til áframhaldandi atvinnusköpunar og tók þá Idex ehf. við kyndlinum.
Markmið Idex ehf. er sem fyrr að þjónusta byggingaiðnaðinn með gæða vöru
á hagkvæmu verði.
